Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 03. ágúst 2015 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Swansea ennþá að reyna að losna við Michu
Michu
Michu
Mynd: EPA
Swansea City eru ennþá að reyna að losna við Michu, samkvæmt þjálfaranum, Garry Monk.

Micu skoraði 18 mörk á fyrstu leiktíð sinni með Swansea en hann hefur ekki náð að fylgja því eftir og var lánaður til Napoli á síðustu leiktíð en hann var mikið meiddur og spilaði aðeins þrjá leiki í Serie A.

Hinn 29 ára gamli Spánverji er ekki partur af plönum Monk en hann hefur verið orðaður við Rayo Vaccecano, hans fyrrverandi lið.

„Við erum ennþá að reyna að finna samkomulag sem hentar öllum og vonandi finnur Michu það sem hann þarf að finna," sagði Monk.
Athugasemdir
banner
banner
banner