„Röddin er tæp en ég ætla að fá mér viskí og reyna að koma þessu í gang," sagði Jóhann D Bianco, Joey Drummsen, við Fótbolta.net í Amsterdam í dag. Jóhann er einn dyggasti stuðningsmaður íslenska landsliðsins og lætur sig ekki vanta á leikinn við Holland í kvöld.
„Þetta á eftir að verða eitthvað stórkostlegt. Við vonumst eftir góðum úrslitum og fyrir mig væru jafntefli góð úrslit."
Joey hefur yfirleitt verið kallaður Joey Drummer í gegnum tíðina en núa er hann farinn að nota nafnið Drummsen.
„Það er langt síðan þetta upprunlega nafn kom og ég er að reyna að kötta þetta út og henda í einn stuttan Drummsen. Það er einfalt og gott, þægilegt og öruggt."
„Ég er að vonast eftir litlum Drummsen junior á næstu árum. Hann verður vel upp alinn með kjuða í annarri og kúabjöllu í hinni."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir