Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 03. september 2015 22:33
Alexander Freyr Tamimi
Kári: Var ekki að fara að gera neitt „fancy“ í vörninni
Icelandair
Kári og félagar fagna.
Kári og félagar fagna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason var eins og klettur í vörn íslenska landsliðsins sem vann magnaðan 1-0 útisigur gegn Hollandi í undankeppni EM 2016 í kvöld.

Kári skallaði hvern boltann á fætur öðrum út úr teignum á Amsterdam Arena í kvöld og hélt sóknarmönnum Hollands vel í skefjum. Hann var að vonum ánægður með sigurinn, sem fór langleiðina með að fleyta Íslandi á EM í Frakklandi.

Lestu um leikinn: Holland 0 -  1 Ísland

„Þetta er alveg lygilegt að koma hingað og enda þetta með sex stig á móti Hollandi og markatöluna 3-0. Auðvitað er maður með smá varann á og ekki að taka neina sénsa þegar það eru 5-10 mínútur eftir. Lars var ekkert allt of ánægður með það að við vorum alltaf að negla boltanum fram, en ég var ekki að fara að gera neitt fancy þarna í vörninni," sagði Kári við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Ég skil nú ekki alveg af hverju þeir tóku Huntelaar út af, það var frekar erfitt að eiga við hann. Hann er alltaf rangstæður og er að bíða eftir sendingunni inn fyrir, hann dregur vörnina alltaf aftar, hann er að reyna að fela sig í rangstöðunni. Eftir að hann fór út af var lítið að gerast í framherjastöðunni. Hann er náttúrulega sterkur þessi strákur, Memphis, sem var að spila þarna en hann er ekki beint senter."

Viðtalið má sjá hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner