Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. september 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
Papy Djilobodji ekki í Meistaradeildarhóp hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Papy Djilobodji er ekki í Meistaradeildarhópnum hjá Chelsea. Chelsea keypti Papy frá Nantes á fjórar milljónir punda í vikunni en ekkert pláss er fyrir hann í Meistaradeildarhópnum.

Chelsea varð að hafa átta leikmenn í 25-manna hópi sínum sem eru uppaldir á Englandi.

Liðið gat ekki uppfyllt þau skilyrði og því þurfti Chelsea að fækka um tvo menn í hópnum og skila 23 manna lista.

Þar með var ekkert pláss fyrir Papy en einungis sex varnarmenn eru í hópnum.

Markverðir: Thibaut Courtois, Asmir Begovic, Jamal Blackman

Varnarmenn: Branislav Ivanovic, Kurt Zouma, Abdul Rahman Baba, Gary Cahill, John Terry, Cesar Azpilicueta

Miðjumenn: Cesc Fabregas, Ramires, Oscar, Eden Hazard, John Obi Mikel, Bertrand Traore, Kenedy, Nemanja Matic, Willian, Ruben Loftus-Cheek

Framherjar: Radamel Falcao, Pedro Rodriguez, Loic Remy, Diego Costa
Athugasemdir
banner
banner
banner