Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   fim 03. september 2015 22:09
Magnús Már Einarsson
Amsterdam
Raggi Sig: Kári henti pasta út um allan klefa
Icelandair
Ögmundur Kristinsson og Ragnar sáttir eftir leik.
Ögmundur Kristinsson og Ragnar sáttir eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður Íslands, segir að leikmenn hafi fagnað vel eftir 1-0 sigurinn á Hollandi í kvöld.

„Kári (Árnason) henti pasta út um allan klefa. Það er pasta á öllum töskum og fötum. Það er stemning," sagði Ragnar við Fótbolta.net eftir leik.

„Þetta var ekki fallegur leikur hjá okkur en við gerðum það sem við þurftum að gera. Að vinna Holland á útivelli er geðveikt."

„Framherjarnir og miðjumennirnir voru að vinna eins og dýr í dag og gerðu þetta auðveldara fyrir okkur. Þetta var ekki auðvelt í dag en þeir léttu okkur lífið."


Ísland þarf nú einungis eitt stig til að tryggja sér sæti á EM í fyrsta skipti í sögunni. „Ég held að maður geti ekki annað en að hugsa að þetta sé komið en það má ekki gerast. Við þurfum að vinna heimaleikinn og klára þetta."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner