Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, var svekktur eftir 2-0 tap sinna manna gegn Breiðabliki í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.
Ágúst vill meina að sínir menn hefðu getað fengið meira út úr leiknum og er svekktur að ná ekki að enda í 4. sæti deildarinnar.
Ágúst vill meina að sínir menn hefðu getað fengið meira út úr leiknum og er svekktur að ná ekki að enda í 4. sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 2 Breiðablik
„Það var ekki mikið af færum en við áttum 15-20 skot, sem ég held reyndar bara að eitt hafi farið á markið. Það var léleg nýting hjá okkur. Blikar fá lítið af mörkum á sig ef þeir fá ekki skot á markið, það er nokkuð ljóst. En frábært season hjá þeim og annað sætið, en mér fannst við eiga miklu meira skilið hérna í dag. Er hundsvekktur með að hafa ekki fengið allavega eitt stig og náð þessu fjórða sæti. En við erum i 6. sæti og það er frekar fúlt," sagði Ágúst eftir leikinn.
Ágúst viðurkennir að það gæti orðið erfitt að halda lykilmönnum á borð við Bergsvein Ólafsson og Kennie Chopart fyrir næsta tímabil.
„Það er nokkuð ljóst og það er spurning hvar Fjölnishjartað er í þessu, hvort þessir leikmenn halda áfram eða ekki. Við tökum á því, nú erum við komnir í kærkomið mánaðar frí eftir langt season. Við þurfum bara að finna góða menn og reyna að halda því sem við höfum fyrir," sagði Ágúst.
Athugasemdir