Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 03. október 2015 17:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bilic: Hefði tekið stigið ef ég hefði verið spurður í gær
Slaven Bilic
Slaven Bilic
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, stjóri West Ham, var ágætlega ánægður með 2-2 jafntefli liðsins gegn Sunderland í dag.

West Ham kom til baka í leiknum eftir að hafa lent 2-0 undir, en Bilic taldi þó að lið sitt hefði getað stolið öllum stigunum.

"Ef þú hefði spurt mig í gær hefði ég tekið stigið, við viljum auðvitað vinna alla leiki, en við vissum að þessi yrði erfiður," sagði Bilic eftir leik.

"Þetta eru blendnar tilfinningar. Þegar maður lítur á síðustu 20 mínúturnar þá erum við vonsviknir að hafa ekki unnið leikinn, en stig er stig og þá sérstaklega eftir að hafa lent 2-0 undir."

"Við viljum ekki vera of gráðugir. Þetta var gott stig fyrir okkur."
Athugasemdir
banner
banner