Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2015 15:38
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Chelsea og Southampton: Terry og Falcao byrja
Mynd: Getty Images
John Terry er kominn aftur í hjarta varnarinnar hjá Chelsea og fær hann fyrirliðabandið gegn Southampton.

Radamel Falcao byrjar frammi í stað Loic Remy og hefur hann öfluga menn bakvið sig, þá Willian, Oscar og Eden Hazard. Þá er Nemanja Matic settur á bekkinn fyrir Ramires, sem er einn af þremur Brössum í byrjunarliði heimamanna.

Graziano Pelle er fremstur hjá Southampton sem teflir fram hefðbundnu byrjunarliði.

Chelsea gerði jafntefli við Newcastle í síðustu umferð á meðan Southampton lagði Swansea.

Chelsea og Southampton eru á svipuðum slóðum eftir sjö fyrstu umferðirnar og geta komist í efri hluta deildarinnar með sigri í dag.



Chelsea: Begovic - Ivanovic, Cahill, Terry, Azpilicueta - Ramires, Fabregas - Willian, Oscar, Hazard - Falcao

Southampton: Stekelenburg - Cedric, Fonte, van Dijk, Bertrand - Romeu, Wanyama - Davis, Tadic, Mane - Pelle
Athugasemdir
banner
banner
banner