Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, tilkynnti eftir 3-2 tap gegn Keflavík í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag að hann og Davíð Snorri Jónasson væru nú hættir þjálfun liðsins.
Leiknismenn féllu beint niður í 1. deild eftir sitt fyrsta ár í Pepsi-deildinni og viðurkennir Freyr að sumarið hafi verið vonbrigði.
Leiknismenn féllu beint niður í 1. deild eftir sitt fyrsta ár í Pepsi-deildinni og viðurkennir Freyr að sumarið hafi verið vonbrigði.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 Leiknir R.
„Ég vildi að það væri fyrsta helgin í maí. Það er svo mikið sem maður er búinn að læra og leikmennirnir búnir að þroskast. Ég er alveg handviss um að ef það væri 3. maí væru örlögin okkar næstu sex mánuði allt önnur," sagði Freyr að leik loknum.
„Við erum búnir að læra rosalega mikið, við vissum það svosum. En við trúðum því að við gætum lært á sama tíma og við værum nógu góðir til að halda okkur uppi, en það var ekki þannig."
Freyr greindi svo frá því að hann og Davíð Snorri myndu stíga til hliðar.
„Framhaldið hjá okkur er þannig að við þjálfararnir stígum til hliðar núna og þökkum fyrir okkur og þökkum fyrir frábæra tíma. Það munu einhverjir aðrir koma og þjálfa þetta frábæra Leiknislið," sagði Freyr.
Athugasemdir