NEC 4-1 ADO Den Haag
1-0 Sjálfsmark ('1 )
1-1 Vito Wormgoor ('21)
2-1 Christian Santos ('63 )
3-1 Anthony Limbombe ('76 )
4-1 Christian Santos ('79 )
1-0 Sjálfsmark ('1 )
1-1 Vito Wormgoor ('21)
2-1 Christian Santos ('63 )
3-1 Anthony Limbombe ('76 )
4-1 Christian Santos ('79 )
Hannes Þór Halldórsson og félagar í NEC Nijmegen unnu flottan 4-1 sigur á ADO Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
NEC byrjaði vel og komst yfir þegar Aaron Meijers, leikmaður Ado Den Haag stýrði boltanum í eigið net eftir aðeins eina mínútu en Vito Wormgoor jafnaði metin fyrir gestina um miðbik fyrri hálfleiks og staðan því jöfn í leikhléi.
Christian Santos kom NEC yfir á 63. mínútu og bætti Anthony Limbombe við þriðja marki NEC skömmu síðar.
Santos var svo aftur á ferðinni tíu mínútum fyrir leikslok og gerði út um leikinn er hann skoraði fjórða mark NEC og lokatölur því 4-1 NEC í vil.
Með sigrinum fór NEC upp í sjötta sætið með 13 stig.
Athugasemdir