Kristinn Jónsson, varnarmaður Breiðabliks, var ánægður með að enda tímabilið á 2-0 sigri gegn Fjölni.
Blikar slógu eigið stigamet en það dugði þeim þó ekki til að verða Íslandsmeistarar, en þeir enduðu í 2. sætinu á eftir FH. Kristinn
Blikar slógu eigið stigamet en það dugði þeim þó ekki til að verða Íslandsmeistarar, en þeir enduðu í 2. sætinu á eftir FH. Kristinn
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 2 Breiðablik
„Það er hrikalega gott að klára þetta á sigri eftir hrikalega gott sumar. Það er gaman að klára þetta á sigri og bæta bæði mörk sem þú færð á þig og stigamet hjá Breiðablik," sagði Kristinn að leik loknum.
Kristinn átti sjálfur frábært tímabil og er talið að hann fari út í atvinnumennskuna að sumrinu loknu. Hann hefur verið í landsliðshópnum undanfarið.
„Það verður bara að koma í ljós, eins og staðan er í dag eru meiri líkur en minni á að ég spili ekki hérna á næsta ári. Ég ætla ekkert að fara að segja hvað sé í samningnum mínum, það er bara fyrir mig, en það er klárlega eitthvað í honum," sagði Kristinn.
„Ég held að það sé klárt mál að það vilja allir leikmenn fara út til að bæta sig og ég tel mig klárlega hafa getu til þess að spila á hærra leveli en hér heima. Vonandi kemur eitthvað gott í glugganum og ég get látið ljós mitt skína þar."
Athugasemdir