Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 03. október 2015 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Koeman: Áttum skilið að fá þrjú stig í dag
Ronald Koeman
Ronald Koeman
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Southampton, var mjög ánægður með 3-1 sigur sinna manna gegn Chelsea í dag.

Southampton hefur verið að spila vel undanfarið og var þetta þriðji sigurleikur liðsins í röð.

"Þetta er sjálfstraustið sem við þurfum. Ef við getum gert þetta á móti Chelsea, þá getum við vonandi gert þetta áfram," sagði Koeman eftir leik.

"Við byrjuðum leikinn dálítið erfiðlega, en komum til baka og spiluðum mikið betur í seinni hálfleik."

"Að mínu mati þá áttum við skilið að fá þrjú stig í dag. Við sýndum trú og tókum stjórnina þegar fór að líða að hálfleik."
Athugasemdir
banner
banner
banner