Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. október 2015 19:54
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Ótrúlegur sjö mínútna reiðilestur Mourinho
Er Mourinho að missa það?
Er Mourinho að missa það?
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var að vonum svekktur eftir 3-1 tap sinna manna gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea hefur byrjað tímabilið ömurlega og er liðið í 16. sæti deildarinnar með átta stig eftir jafn marga leiki.

Mourinho er þekktur fyrir að segja skoðanir sínar hreint út í viðtölum og það gerði hann svo sannarlega í samtali við Sky Sports í dag. Viðtalið sem hann veitti eftir tapið gegn Southampton á eftir að fara í sögubækurnar sem eitt ótrúlegasta viðtalið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Verður það líklega nefnt í sömu andrá og frægur "staðreynda" blaðamannafundur Rafa Benítez, þáverandi stjóra Liverpool.

Hér að neðan má sjá sjö mínútna einræðu Mourinho eftir að hann var spurður einnar spurningar. Þar talar hann meðal annars um að hann sé besti stjórinn í sögu Chelsea og að hann sé sá eini sem enska knattspyrnusambandið refsi.

Sjón er sögu ríkari.


Athugasemdir
banner
banner
banner