Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 03. október 2015 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Vísir.is 
Sjáðu mörkin: Aguero skoraði fimm gegn Newcastle
Sergio Aguero var á eldi í dag
Sergio Aguero var á eldi í dag
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero varð í dag fimmti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora fimm mörk í einum og sama leiknum, en Aguero gerði það í 6-1 sigri Man City gegn Newcastle í dag.

Aguero tókst að jafna metin rétt fyrir leikhlé, eftir að Alexander Mitrovic hafði komið Newcastle yfir.

Aguero bætti svo við fjórum mörkum til viðbótar á fyrsta korterinu í seinni hálfleik, en Kevin De Bruyne skoraði einnig og 6-1 sigur City staðreynd.

Aguero bættist því í hóp með mönnum á borð við Alan Shearer, Andy Cole, Jermain Defoe og Dimitar Berbatov, en þeir hafa einnig gert fimm mörk í leik en enginn þeirra gerði það á jafn skömmum tíma og Aguero.

Vísir hefur nú birt myndband með öllum mörkum Aguero í leiknum og má sjá þau hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner