Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. október 2015 16:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sevilla lagði Barcelona af velli
Mynd: Getty Images
Sevilla 2 - 1 Barcelona
1-0 Michael Krohn-Dehli ('52)
2-0 Vicente Iborra ('58)
2-1 Neymar ('74, víti)

Tímabilið hefur farið heldur brösulega af stað hjá Barcelona miðað við síðustu ár.

Í dag töpuðu Börsungar fyrir Sevilla, aðeins tíu dögum eftir 4-1 tap gegn Celta Vigo.

Staðan var markalaus í hálfleik en Michael Krohn-Dehli og Vicente Iborra sáu um að koma Sevilla tveimur mörkum yfir snemma í síðari hálfleik.

Neymar minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu en nær komust Börsungar ekki og eru í þriðja sæti með fimmtán stig eftir tapið.

Þetta er aðeins annar sigur Sevilla á tímabilinu sem fékk aðeins tvö stig úr fyrstu fimm umferðunum.
Athugasemdir
banner
banner