Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 03. október 2017 06:00
Hafliði Breiðfjörð
ÍBV vill ráða yngriflokkaþjálfara í fullt starf
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV íþróttafélag óskar eftir að ráða knattspyrnuþjálfara í fullt starf við þjálfun yngri flokka félagsins.

Gott er ef viðkomandi hefur lokið UEFA-B þjálfararéttindum eða er með starfsreynslu af þjálfun yngri flokka.

Hjá ÍBV starfa 5 þjálfarar í fullu starfi ásamt þjálfurum í hlutastarfi.
Aðstaða til knattspyrnuiðkunar er öll hin besta en í Eyjum eru 4 náttúrugrasvellir ásamt yfirbyggðri knattspyrnuhöll.

Áhugasamir hafi samband við yfirþjálfara ÍBV Ian Jeffs [email protected] eða framkvæmdarstjóra ÍBV íþróttafélags [email protected] fyrir 15.október.
Athugasemdir
banner
banner
banner