Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 03. desember 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Demba Ba hafnar nýju samningstilboði frá Newcastle
Mynd: Getty Images
Demba Ba hefur hafnað nýju samningstilboði frá Newcastle samkvæmt fjölmiðlum í Englandi.

Ba er með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara á 7,5 milljónir punda.

Ekkert félag lét reyna á þá klásúlu í sumar en menn hjá Newcastle óttast að félög fari að gera tilboð í Ba fljótlega.

Umboðsmenn Ba hafa átt í viðræðum við Newcastle undanfarið en þeir hafa nú hafnað nýjasta samningstilboðinu.

Ba, sem er 27 ára, hefur skorað átta mörk í sextán leikjum á þessu tímabili en hann er markahæsti leikmaður Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner
banner