Fylkir vann 4-1 sigur á Leikni úr Reykjavík í æfingaleik. Mörk Fylkis skoruðu þeir Oddur Ingi Guðmundsson, Víðir Þorvarðarson, Hafliði Sigurðarson og Hákon Ingi Jónsson, sem kom á dögunum aftur til liðsins frá HK.
ÍA og Fram gerðu markalaust jafntefli. Skagamenn spila í Pepsi-deildinni, en Frammarar eru í Inkasso-deildinni og enduðu um miðja deild þar síðasta sumar.
Að lokum mættust tvö Pepsi-deildarlið kvennamegin, Stjarnan og FH, en liðin mættust í Kórnum. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Fyrsta mark FH skoraði Melkorka Katrín Pétursdóttir en seinni tvö mörkin skoraði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Óvitað er hver markaskorarar Stjörnunnar voru.

Fylkir 4 - 1 Leiknir R.
Mörk Fylkis: Oddur Ingi Guðmundsson, Víðir Þorvarðarson, Hafliði Sigurðarson og Hákon Ingi Jónsson.
ÍA 0 - 0 Fram
Sjarnan 3 - 3 FH
Mörk FH: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 2, Melkorka Katrín Pétursdóttir.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir