Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. desember 2016 21:28
Arnar Geir Halldórsson
Æfingaleikur: KA skoraði sjö
Áki Sölvason setti tvö
Áki Sölvason setti tvö
Mynd: Heimasíða KA
KA 7-0 Dalvík/Reynir
Markaskorarar KA: Áki Sölvason 2, Elfar Árni Aðalsteinsson, Ásgeir Sigurgeirsson, Pétur Heiðar Kristjánsson, Daníel Hafsteinsson, Ólafur Aron Pétursson

Pepsi-deildarlið KA og 3.deildarlið Dalvíkur/Reynis mættust í æfingaleik í Boganum á Akureyri í dag en bæði lið eru nýfarin af stað í undirbúning fyrir komandi leiktíð.

Skemmst er frá því að segja að KA-menn unnu öruggan sjö marka sigur.

Staðan í leikhléi var 2-0 fyrir Pepsi-deildarliðinu en þeir keyrðu yfir Dalvíkingana þegar leið á leikinn.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner