Arnór Breki Ásþórsson, bakvörður Aftureldingar, hefur samið um að leika áfram með liðinu á næstu leiktíð.
Arnór Breki á 33 leiki fyrir Aftureldingu í meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall.
Arnór Breki á 33 leiki fyrir Aftureldingu í meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall.
Hann ákvað að halda tryggð við uppeldisfélag sitt þrátt fyrir áhuga frá liðum úr efri deildum.
Þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir Mosfellinga enda var Arnór Breki valinn í lið ársins í 2.deildinni hjá Fótbolta.net eftir flottar frammistöður í sumar.
Afturelding hafnaði í þriðja sæti 2. deildar karla í sumar eftir harða baráttu við Gróttu. Þeir stefna eflaust hærra næsta sumar í Mosfellsbæ.
Athugasemdir