Horsens 1-2 Viborg
0-1 Serge Deble (´21)
0-2 Christian Sivbæk (´54)
1-2 Hallur Hansson (´73)
0-1 Serge Deble (´21)
0-2 Christian Sivbæk (´54)
1-2 Hallur Hansson (´73)
Horsens fékk Viborg í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Kjartan Henry Finnbogason hóf leik á varamannabekk Horsens.
Hann horfði á liðsfélaga sína lenda 0-2 undir áður en hann kom inn á eftir um klukkutíma leik.
Skömmu síðar skoraði færeyski landsliðsmaðurinn Hallur Hansson og gaf heimamönnum von fyrir lokamínúturnar. Ekki tókst þeim hinsvegar að jafna metin áður en yfir lauk.
Athugasemdir