Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. desember 2016 14:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Diego Costa: Allir vita hvað við verðum að gera
Diego Costa er sjóðandi heitur þessa dagana
Diego Costa er sjóðandi heitur þessa dagana
Mynd: Getty Images
„Við erum að vinna mjög vel taktískt saman, allir vita hvað við verðum að gera," sagði Diego Costa, sóknarmaður Chelsea, eftir 3-1 sigur sinna manna á Man City í stórleik helgarinnar í enska boltanum.

Chelsea er núna komið með fjögurra stiga forskot á toppi ensku deildarinnar og hlutirnir líta vel út fyrir þá bláu úr Lundúnarborg.

„Man City fékk tækifæri til þess að skora seinna mark sitt, en þeir klúðruðu og þegar við skoruðum svo þá fengum við meira sjálfstraust og síðan fengum við tækifæri til þess að skora og við gerðum það. Þetta var frábær leikur."

Margir hafa tekið eftir því að Costa er orðinn rólegri á vellinum, en hann var spurður út í þetta eftir leik af fjölmiðlamönnum.

„Ég vil vera á vellinum og ég vil vera rólegur."
Athugasemdir
banner
banner
banner