Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. desember 2016 15:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir úr Man City - Chelsea: Costa með hæstu einkunn
Besti maður vallarins í dag
Besti maður vallarins í dag
Mynd: Getty Images
Man City tók á móti Chelsea í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, en leiknum lauk með 3-1 sigri gestana frá Lundúnarborg.

City-menn komust yfir, en það var ekki nóg þar sem Chelsea kom til baka í seinni hálfleik og vann að lokum áðurnefndan 3-1 sigur.

Diego Costa, Willian og Eden Hazard skoruðu mörk Chelsea, en þeir fá allir yfir 8 í einkunn hjá Sky Sports

Hér að neðan má sjá einkunnargjöfina í heild sinni.

Einkunnir Man City: Bravo (5), Stones (6), Otamendi (4), Kolarov (5), Fernandinho (5), Gundogan (6), Navas (6), Sane (5), Silva (6), De Bruyne (7), Aguero (6).

Varamenn: Iheanacho (6), Clichy (6), Yaya Toure (6).

Einkunnir Chelsea: Courtois (8), Azpilicueta (7), David Luiz (8), Cahill (6), Moses (6), Kante (6), Fabregas (8), Alonso (6), Pedro (6), Diego Costa (9), Hazard (8).

Varamenn: Willian (8), Chalobah (6), Batshuayi (6).

Maður leiksins: Diego Costa, Chelsea
Athugasemdir
banner
banner