Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. desember 2016 18:04
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Leikmenn Preston slógust við hvorn annan og fengu rautt
Simon Grayson
Simon Grayson
Mynd: Getty Images
Stórfurðulegt atvik átti sér stað undir lok leiks Sheffield Wednesday og Preston North End í ensku B-deildinni í dag.

Eoin Doyle og Jermaine Beckford fengu þá báðir að líta rauða spjaldið fyrir slagsmál, sem væri kannski ekki mjög fáranlegt ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þeir eru samherjar í liði Preston.

Beckford var afar ósáttur með Doyle af því að sá síðarnefndi ákvað að skjóta á markið í stað þess að senda á Beckford og endaði rifrildi þeirra með handalögmálum.

Leikurinn endaði með 2-1 sigri Sheffield Wednesday en áðurnefndur Doyle skoraði eina mark Preston í leiknum.

Simon Grayson, stjóri Preston, gagnrýndi leikmennina harkalega á blaðamannafundi eftir leikinn, sagði framkomu þeirra til skammar og að félagið myndi taka á málinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner