Heimild: Sky Sports
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, segist alltaf hafa búist við því að koma aftur til enska félagsins eftir að hafa yfirgefið það árið 2012.
Hinn 23 ára gamli Pogba kom aftur til Man Utd í sumar eftir dvöl á Ítalíu með Juventus. Hann segir að ekkert hafi breyst hjá félaginu.
Hinn 23 ára gamli Pogba kom aftur til Man Utd í sumar eftir dvöl á Ítalíu með Juventus. Hann segir að ekkert hafi breyst hjá félaginu.
„Ég er með United í hjartanu," sagði Pogba við Sky Sports. „Þetta er heimilið mitt. Þegar ég fór þá vissi ég að ég myndi alltaf koma aftur," sagði Pogba ennfremur.
„Fyrir mér, þá er þetta mjög eðlilegt. Það er eins og ég hafi farið í frí og komið síðan til baka. Það hefur í alvörunni ekkert breyst og ég er sami maðurinn."
Man Utd keypti Pogba fyrir metupphæð í sumar, en hann hefur hingað til ekki náð að standa undir verðmiðanum sínum.
Athugasemdir