Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. desember 2016 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Fjölnir í úrslitaleik eftir sigur á Víkingi
Fjölnismenn fagna hér marki í dag
Fjölnismenn fagna hér marki í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir 3- 1 Víkingur
1-0 Þórir Guðjónsson ('38)
2-0 Ingimundur Níels Óskarsson ('52)
2-0 Ívar Örn Jónsson ('64, misnotað víti)
2-1 Viktor Örlygur Andrason ('66)
3-1 Viðar Ari Jónsson ('78)

Fjölnir er komið í úrslitaleik Bose mótsins eftir að hafa unnið 3-1 sigur á Víkingi Reykjavík í lokaleik riðil síns í dag.

Þórir Guðjónsson kom Fjölni yfir eftir 38 mínútna leik með skalla eftir fyrirgjöf Birnis Snæs Ingasonar. Ingimundur Níels Óskarsson bætti svo öðru marki við eftir að hafa komist einn á móti markverði Víkinga snemma í síðari hálfleik.

Um miðjan seinni hálfleikinn minnkaði Víkingur muninn. Viktor Örlygur Andrason fékk boltann þá fyrir utan teig og lét vaða upp í samskeytin, glæsilegt mark.

Viðar Ari Jónsson gerði þó endanlega út um leikinn fyrir Fjölni þegar 12 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma þegar hann stal boltanum af varnarmönnum Víkings, skaut að marki en lét verja frá sér, tók boltann aftur og setti í markið.

Smelltu hér til þess að sjá mörkin úr leiknum

Fjölnir vann sinn riðil með sigrinum í dag, en lokastöðuna í riðlinum má sjá hér að neðan.

Lokastaðan:
Fjölnir 2 leikir, 4 stig, 5-3
Víkingur 2 leikir, 3 stig, 2-3
Breiðablik 2 leikir, 1 stig, 2-3
Athugasemdir
banner
banner
banner