Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 03. desember 2017 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Wolfsburg lagði Gladbach örugglega
Leikmenn Wolfsburg fagna í kvöld.
Leikmenn Wolfsburg fagna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Kevin-Prince Boateng gerði sigurmark Eintracht Frankfurt gegn Hertha Berlin í þýska boltanum í dag.

Heimamenn komust yfir í Berlín en staðan var orðin jöfn í hálfleik, 1-1. Boateng gerði svo sigurmarkið á 80. mínútu.

Wolfsburg lenti þá ekki í vandræðum gegn sterku liði Borussia Mönchengladbach.

Gestirnir, sem hefðu komið sér í 2. sæti með sigri, fengu mikið af góðum færum en inn vildi boltinn ekki.

Yunus Malli og Daniel Didavi gerðu fyrstu tvö mörkin á fyrstu 25 mínútunum og gerði Joshua Guilavogui út um leikinn í síðari hálfleik, með þriðja og síðasta markinu.

Hertha Berlin 1 - 2 Eintracht Frankfurt
1-0 D. Selke ('15)
1-1 M. Wolf ('26)
1-2 K. Boateng ('80)

Wolfsburg 3 - 0 Borussia M'Gladbach
1-0 Y. Malli ('4)
2-0 D. Didavi ('25)
3-0 J. Guilavogui ('71)
Athugasemdir
banner
banner
banner