Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 04. janúar 2018 13:20
Magnús Már Einarsson
KSÍ jafnar árangurstengdar greiðslur til karla og kvennalandsliðsins
Árangurstengdar greiðslur til A-landsliðs kvenna hækka.
Árangurstengdar greiðslur til A-landsliðs kvenna hækka.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Stjórn KSÍ hefur tekið þá ákvörðun að jafna árangurstengdar greiðslur leikmanna A-landsliða karla og kvenna í undankeppnum stórmóta.

Dagpeninga greiðslur hafa verið jafnar hjá A-landsliðum karla og kvenna í áraraðir og nú verða árangurstengdar greiðslur einnig þær sömu. Um er að ræða umtalsverða hækkun á árangurstengdum greiðslum til leikmanna í A-landsliði kvenna.

„Þetta er skref sem að við tókum einhuga í stjórninni. Við töldum að þetta væri framfaraspor. Við viljum vera framsækin og ákváðum því að stíga þetta skref," sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

„Það hefur verið umræða um þetta á Norðurlöndunum og víðar og Noregur hefur tekið þetta skref. Við töldum þetta vera tímabært og hvatningu fyrir íslenskan fótbolta."

„Auðvitað hafa dagpeningagreiðslur verið jafnar um árabil. Við vildum breyta í þessa átt og gera breytingar á þessum árangurstengdu greiðslum. Þetta er umtalsverð hækkun á
árangurstengdum greiðslum til A-landsliðs kvenna,"
sagði Guðni.

Yfirlýsing KSÍ
Stjórn KSÍ hefur endurskoðað fyrirkomulag á árangurstengdum greiðslum (stigabónus) til leikmanna A landsliðanna vegna leikja í undankeppnum stórmóta. Upphæðir sem greiddar eru til leikmanna fyrir áunnin stig í undankeppnum stórmóta verða þær sömu óháð því hvort lið sé um að ræða.

Hingað til hefur fyrirkomulagið milli A landsliða karla og kvenna verið gerólíkt en eftir breytinguna er fyrirkomulagið orðið eins hjá báðum A landsliðum. Um er að ræða umtalsverða hækkun á stigabónus til leikmanna A landsliðs kvenna. Því má svo bæta við að dagpeningagreiðslur KSÍ til leikmanna vegna þátttöku í verkefnum A landsliða karla og kvenna hafa verið jafn háar í báðum liðum um árabil.

Það er mikilvægt fyrir íslenska knattspyrnu að KSÍ sé framsækið og beri hag allrar knattspyrnufjölskyldunnar fyrir brjósti. Það er von KSÍ að þetta skref hvetji fleiri knattspyrnusambönd til að fylgja í kjölfarið og stærri skref verði stigin á næstu árum og misserum í átt til meira jafnréttis karla og kvenna í milli.
Athugasemdir
banner
banner