Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 04. febrúar 2016 15:54
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Brian McClair horfði á U17 kvennalið Íslands vinna
Brian McClair í Egilshöllinni.
Brian McClair í Egilshöllinni.
Mynd: KSÍ - Hilmar Þór Guðmundsson
U17 ára lið kvenna vann í dag 4-2 sigur á Skotlandi í Egilshöll en þetta var seinni vináttulandsleikur liðanna í vikunni. Fyrri leikurinn endaði 3-0 fyrir Íslandi.

Íslenska liðið komst yfir í leiknum í dag á 17. mínútu með marki Öglu Maríu Albertsdóttur en Agla náði að koma boltanum í markið eftir fyrirgjöf í vítateiginn. Hlín Eiríksdóttir kom Íslandi í 2-0 en markið skorað Hlíni af harðfylgi með góðu skoti úr vítateig Skota. Stelpurnar okkur misstu niður dampinn í seinni hálfleik og hleyptu skoska liðinu inn í leikinn. Jamie-Lee Napier minnkaði muninn í 2-1 á 64. mínútu og tveimur mínútum síðar jafnaði Kaela McDonald-Nguah metin með laglegu marki.

Íslenska liðið vaknaði hressilega við eftir þennan slæma kafla og Guðrún Gyða Haralz kom Íslandi yfir á 68. mínútu og það var svo Agla María sem skoraði glæsilegt mark undir lok leiksins sem gulltryggði 4-2 sigur Íslands í leiknum. Ísland vann því báða vináttulandsleikina við Skota í vikunni.

Meðal áhorfenda var Brian McClair sem varð fjórum sinnum Englandsmeistari sem leikmaður með Manchester United á árunum 1992-1997 en hann starfar nú sem íþróttastjóri (Performance Director) hjá skoska knattspyrnusambandinu.

Sjáðu myndir úr leiknum af Facebook-síðu KSÍ
Athugasemdir
banner
banner
banner