Skráningar í frönskuskóla Alliance Francaise hafa aldrei verið fleiri en núna í ár. Nemendur eru tæplega 300 á öllum stigum og er sprenging í nýskráningum.
Alliance Francaise Ísland er elsta starfandi Alliance Francaise utan Frakklands, verið starfandi síðan 1911.
Sennilega hefur EM í fótbolta eitthvað með það að gera, hvað margir eru að skrá sig núna.
En þetta er ánægjuleg þróun.
Franska kvikmyndahátíðinni var að ljúka í Reykjavík og var hún vel sótt.
Alliance Francaise hvetur íslendinga sem ætla til Frakklands í sumar að koma á frönsku námskeið í yfirlýsingu. „Allez les autres blues"
Athugasemdir