Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 04. febrúar 2016 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Guillermo Varela: Ferguson enn saknað í búningsklefanum
Mynd: Getty Images
Guillermo Varela er 22 ára gamall hægri bakvörður hjá Manchester United og átti góðan leik í bikarnum gegn Derby County á dögunum.

Varela var spurður hvort það væru einhver vandræði innan herbúða Rauðu djöflanna og svaraði hann því neitandi, en talaði þó um erfiðan persónuleika Louis van Gaal og sagði að sumir leikmenn sakni Sir Alex Ferguson, þó það séu næstum þrjú ár síðan hann hætti.

„Orðrómarnir segja að það sé alltaf einhvers konar vandamál á milli Van Gaal og suður-amerískra leikmanna, en ef ég á að segja satt þá hef ég ekki tekið eftir neinu svoleiðis," sagði Varela, sem hefur leikið yfir 20 leiki fyrir yngri landslið Úrúgvæ.

„Hann er með sérstakan persónuleika og það getur verið erfitt fyrir suma leikmenn innan félagsins að eiga við hann.

„Það hafa orðið miklar breytingar innan Manchester United eftir að Sir Alex Ferguson fór, það sést augljóslega í búningsklefanum að hans er enn saknað."

Athugasemdir
banner
banner
banner