Það verða tveir leikir á dagskrá í Reykjavíkurmótinu í kvöld og einn leikur fer fram í Faxalóamóti kvenna.
Þá spilar einnig U17 ára landslið Íslands vináttuleik gegn Skotlandi klukkan 13:00 í Egilshöll.
Leiknir Reykjavík mætir Fjölni í undanúrslitaleik Reykjavíkurmótsins en í hinum undanúrslitaleik mótsins mætast Valur og Víkingur.

Úrslitaleikur mótsins fer svo fram næstkomandi mánudag í Egilshöll.
Einn leikur fer svo fram í Faxaflóamóti kvenna en þar eigast við Stjarnan og Íslandsmeistarar Breiðabliks.
Reykjavíkurmót karla Úrslit
18:45 Leiknir R.-Fjölnir (Egilshöll)
20:45 Valur-Víkingur R. (Egilshöll)
Faxaflóamót kvenna - Riðill A
20:15 Stjarnan-Breiðablik (Kórinn)
Vináttulandsleikur U17:
13:00 Ísland - Skotland (Egilshöll)
Athugasemdir