Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 04. febrúar 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Joe Funicello tekur við BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Joe Funicello í leik með Þór.
Joe Funicello í leik með Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Joe Funicello, fyrrum leikmaður Þórs, hefur verið ráðinn þjálfari BÍ/Bolungarvíkur í 2. deildinni.

Hinn 28 ára gamli Joe spilaði með Þór 2010, 2012 og 2013.

Undanfarin ár hefur Joe verið með fyrirtækið Soccerviza en margir erlendir leikmenn hafa komið til Íslands í gegnum það fyrirtæki.

„Það er heiður að stjón BÍ hafi treyst mér fyrir þessu verkefni," sagði Joe á heimasíðu Soccerviza.

BÍ/Bolungarvík féll úr 1. deildinni í fyrra en Jón Hálfdán Pétursson hætti þjálfun liðsins eftir síðasta tímabil.
Athugasemdir
banner