Brasilíski sóknarmaðurinn Leandro Damiao er genginn til liðs við Real Betis í spænsku deildinni.
Damiao þótti meðal efnilegustu sóknarmanna heims fyrir nokkrum árum þar sem hann gerði 33 mörk í 98 deildarleikjum fyrir Internacional í brasilísku deildinni.
Damiao þótti meðal efnilegustu sóknarmanna heims fyrir nokkrum árum þar sem hann gerði 33 mörk í 98 deildarleikjum fyrir Internacional í brasilísku deildinni.
Tottenham og Liverpool voru meðal félaga sem höfðu mikinn áhuga á Damiao á sínum tíma, en sóknarmaðurinn hefur gert 3 mörk í 17 landsleikjum.
Damiao er samningslaus eftir erfiða tíma hjá Santos og Cruzeiro í brasilíska boltanum en er nú búinn að skrifa undir fimm mánaða samning við Betis þar sem hann getur sannað ágæti sitt í spænsku deildinni, en Betis er ekki búið að vinna deildarleik síðan 27. nóvember og aðeins búið að skora 15 mörk í 22 leikjum.
Athugasemdir