Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 04. febrúar 2016 09:00
Óðinn Svan Óðinsson
Mauro Zarate: Það voru mistök að fara til West Ham
Zarate fer vel af stað á ítalíu
Zarate fer vel af stað á ítalíu
Mynd: Getty Images
Framherjinn knái Mauro Zarate sem nýverið gekk í raðir Fiorentina á Ítalíu náði heldur betur að stimpla sig inn hjá sínu nýja félagi í gærkvöldi.

Kappinn skoraði sigurmark liðsins þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma og tryggði þannig heimamönnum mikilvægan sigur í toppbaráttunni.

“Ég vildi koma aftur til Ítalíu og félagið veit að ég neitaði örðum liðum til að koma og spila fyrir Fiorentina,” sagði Zerate kokhraustur eftir leikinn í kvöld.

Hann bætti við “Það voru mistök að fara til West Ham og ég hugsaði það ekki alveg til enda. Enska úrvalsdeildin er skemmtileg og þar eru hærri laun sem hafði áhrif á ákvörðun mína um að ganga til liðs við West Ham,” sagði Zerate að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner