Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. febrúar 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
PSG hefur ekki tapað í 33 leikjum í röð
Mynd: Getty Images
Það verður seint sagt að baráttan um franska meistaratitilinn sé spennandi.

PSG sigraði Lorient 3-1 í gær og er eftir leikinn með 24 stiga forskot á toppi deildarinnar.

PSG er með 66 stig í 24 leikjum en Monaco kemur næst með 42 stig.

Yfirburðir PSG hafa verið ótrúlegir í Frakklandi undanfarin ár en ef síðasta tímabil er tekið með þá er liðið taplaust í 33 leikjum í röð.

Zlatan Ibrahimovic er sem fyrr aðalmaðurinn hjá PSG en hann er langmarkahæstur í deildinni með tuttugu mörk, átta mörkum á undan Michy Batshuayi framherja Marseille sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner