Fyrri undanúrslitaleikur Sevilla og Celta Vigo í spænska konungsbikarnum fer fram í kvöld klukkan 20:00.
Leikið verður á Ramón Sánchez vellinum í Sevilla en liðin eru á svipuðu róli í spænsku deildinni og sitja í 5. og 7. sæti deildarinnar.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Barcelona og Valencia en fyrri leik þeirra liða lauk með öruggum sigri Börsunga.
Leikur kvöldsins í spænska konungsbikarnum:
20:00 Sevilla - Celta Vigo
Athugasemdir