„Ég hlakka til að komast í form og byrja tímabilið," sagði Thiago Pinto Borges við Fótbolta.net í dag eftir að hann samdi við Þrótt.
Þessi 27 ára gamli Brasilíumaður hefur spilað í Danmörku nánast allan sinn meistaraflokksferil og hann segir að Per Rud, yfirmaður íþróttamála hjá Þrótti, hafi haft mikið að segja í ákvörðun hans að koma til Íslands.
„Ég hef þekkt Per lengi. Ég spilaði á móti liði hans þegar hann var hjá Bröndby. Símtalið frá honum var mjög mikilvægt því hann sagði mér hluti um félagið og landið."

Thiago hefur kynnst því að fótboltinn í Danmörku er allt öðruvísi en í heimalandinu Brasilíu.
„Í Brasilíu hefur þú mikinn tíma til að husga með boltann. Í Danmörku hefur þú ekki mikinn tíma og þetta er mjög varnarsinnað. Ég sem sóknarsinnaður miðjumaður þarf alltaf að hlaupa til baka. Í Brasilíu ertu ekki svona varnarsinnaður, þegar þú ert án boltans þá ertu að hvíla þig. Það gerist ekki í Danmörku."
Thiago er fluttur til Íslands til að hefja undirbúning fyrir sumarið með Þrótti. Hann hræðist ekki íslenska kuldann.
„Ég hef verið í mörg ár í Danmörku og þetta er ekki mikill munur. Þetta er í góðu lagi," sagði Thiago.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir