Leik Keflavíkur og Vals í Lengjubikar karla lauk með 3-3 jafntefli en leikurinn var háður í Reykjaneshöllinni nú í kvöld.
Mér fannst þetta bara hörkuleikur, við mættum hérna sterku Keflavíkurliði þeir voru eiturbrattir, sagði Sigurbjörn Hreiðarsson annar þjálfara Vals í viðtali við Fótbolta.net
Mér fannst þetta bara hörkuleikur, við mættum hérna sterku Keflavíkurliði þeir voru eiturbrattir, sagði Sigurbjörn Hreiðarsson annar þjálfara Vals í viðtali við Fótbolta.net
Þetta var kaflaskipt. Þeir byrja miklu betur en við svo komum við inn í leikinn og við gefum klaufamörk. Við áttum hluta í leiknum og þeir hluta en fyrst og fremst var ákefð í þessu og læti og það vill maður fá á þessum tíma.
Hópurinn er flottur, þetta eru flottir strákar og við erum bara að þéttast og ætlum að gera þetta eins og menn. Við teljum okkur vera með fínan hóp í fínt sumar.
Eins og einhver sagði, maður fúlsar aldrei við öflugum spilara, sagði Sigurbjörn aðspurður út í leikmannamál.
Athugasemdir