Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2015 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir úr Newcastle - Man Utd: Di Maria tvistaður
David De Gea hefur verið lykilmaður hjá Man Utd á tímabilinu.
David De Gea hefur verið lykilmaður hjá Man Utd á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Spennandi viðureign Newcastle United gegn Manchester United var að ljúka með sigri Rauðu djöflanna.

Bæði lið fengu sinn skerf af færum en eina mark leiksins skoraði Ashley Young á 89. mínútu eftir hrikaleg markmannsmistök Tim Krul sem átti góðan leik þar til rétt í lokin.

Einkunnagjöf Goal.com er hér fyrir neðan þar sem David De Gea var valinn maður leiksins og Young, sem skoraði eina markið, fékk aðeins þrjá í einkunn.

Angel Di Maria var tvistaður, enda átti hann hræðilegan leik þar sem hann sýndi lítið sem ekkert sjálfstraust og var skipt af velli eftir tæpan klukkutíma.

Newcastle United:
Tim Krul - 4
Daryl Janmaat - 7
Mike Williamson - 3
Fabricio Coloccini - 3
Ryan Taylor - 7
Moussa Sissoko - 6
Mehdi Abeid - 5
Gabriel Obertan - 4
Emmanuel Riviere - 7
Papiss Cisse - 3
Sammy Ameobi - 7
(Jonas Gutierrez 6, Ayoze Perez 6)

Manchester United:
David De Gea - 7 Maður leiksins
Jonny Evans - 5
Chris Smalling - 4
Marcos Rojo - 6
Marouane Fellaini - 3
Ander Herrera - 6
Angel Di Maria - 2
Daley Blind - 6
Ashley Young - 3
Antonio Valencia - 5
Wayne Rooney - 7
(Adnan Januzaj 3)
Athugasemdir
banner