Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. mars 2015 21:50
Elvar Geir Magnússon
England: Sturridge skoraði í sigri Liverpool
Sturridge skoraði í kvöld.
Sturridge skoraði í kvöld.
Mynd: Getty Images
Liverpool 2 - 0 Burnley
1-0 Jordan Henderson ('29 )
2-0 Daniel Sturridge ('51 )

Liverpool vann sannfærandi sigur gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Liverpool er með 51 stig í fimmta sætinu, tveimur stigum á eftir Manchester United sem er í fjórða.

Liverpool er á beinu brautinni og stefnir hraðbyri að þátttöku í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Jordan Henderson heldur áfram að sýna skínandi frammistöðu með fyrirliðabandið en hann braut ísinn með þrumuskoti. Daniel Sturridge bætti svo við marki en hann var líflegur í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í nokkurn tíma. Henderson með sendinguna.

Eftir annað markið sigldi Liverpool þessu heim af öryggi.

Burnley er enn í fallsæti og framundan hjá liðinu er afar erfið barátta fyrir lífi í deild þeirra bestu.
Er Arne Slot rétti maðurinn fyrir Liverpool?
Athugasemdir
banner
banner
banner