Hin geysivinsæla Firmakeppni Eimskips og Knattspyrnudeildar UMFG snýr aftur eftir nokkurra ára hlé Laugardaginn 4. apríl næstkomandi.
Firmakeppnin fer fram í Íþróttahúsi Grindavíkur og er búist við hörkustemningu eins og venjan er þegar þessi mót fara fram.
Firmakeppnin er liður í fjáröflun Meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir æfingaferð liðsins til Spánar í vor.
Leikið er í 4 manna liðum
Leiktími er 2x5 mínútur
Þátttökugjald er 30.000 krónur á lið.
Skráning er hjá Knattspyrnudeildinni í síma 426-8605 eða á netfangið [email protected]
Knattspyrnudeild Grindavíkur hvetur fyrirtæki og hópa til þess að skrá sig til leiks og vera með í þessu stórskemmtilega móti.
Athugasemdir