Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. mars 2015 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Gabriel fór meiddur af velli - Stuðningsmenn Arsenal ósáttir
Mynd: Getty Images
Staðan er markalaus þegar klukkutími er liðinn af viðureign QPR og Arsenal.

Lítið er búið að gerast í leiknum en reiði Arsenal-manna á Twitter leyndi sér ekki þegar nýr varnarmaður félagsins, Gabriel Paulista, þurfti að fara af velli meiddur í fyrri hálfleik.

Arsene's Son @hughwizzy:
,,Gabriel fer af velli meiddur #ArsenalDNA"

A. Devoti @AgustinDevoti:
,,Velkominn til Arsenal, Gabriel"

Football Cliches @FootballCliches:
,,Gabriel hefur lokið 1. skrefi Arsenal ferilsins. Skref 2 - "meiðslavandræðin" - er að hefjast."

Oreva_the_Great @Orayvaar:
,,gabriel varð bara að ljúka inntökuprófinu með því að meiðast??"

Hev Rose @hevrose:
,,Ugggghhhh núna er Gabriel, nýi varamiðvörðurinn okkar, meiddur þannig að Koscielny, sem er tæpur, þarf að koma inn í hans stað..."

Only1Arsenal @A4AFC:
,,Gabriel fer af velli vegna vöðvameiðsla.. Sagt er að vöðvameiðsli séu fyrirbyggjanleg.. Það eru annars vegar til venjuleg læknateymi og hinsvegar Arsenal læknar"
Athugasemdir
banner
banner
banner