Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. mars 2015 14:39
Magnús Már Einarsson
Gus Poyet: Hef aldrei átt svona erfiðan dag
Gus Poyet.
Gus Poyet.
Mynd: Getty Images
Gus Poyet, stjóri Sunderland, segir það hafa verið mikið áfall þegar Adam Johnson leikmaður liðsins var handtekinn á mánudag.

Johnson er sakaður um að hafa sofið hjá 15 ára stúlku en Sunderland hefur sett kantmanninn í bann á meðan lögreglan rannsakar málið.

,,Það eina sem ég get sagt ykkur er að þetta var mjög erfiður dagur í gær (Í fyrradag). Ég hef aldrei átt svona erfiðan dag," sagði Poyet.

Sunderland gerði 1-1 jafntefli gegn Hull í gær en stuðningsmenn liðsins sýndu Johnson stuðning þar.

Stuðningsmennirnir sungu meðal annars ,,Það er aðeins einn Andy Johnson" í upphafi leiks.
Athugasemdir
banner
banner
banner