Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 04. mars 2015 22:23
Magnús Már Einarsson
Jonas Gutierrez: Mun muna eftir þessu alla ævi
Fallegt augnablik.  Jonas kemur inn á í kvöld.
Fallegt augnablik. Jonas kemur inn á í kvöld.
Mynd: Getty Images
Jonas Gutierrez snéri aftur í lið Newcastle kvöld eftir að hafa unnið baráttu við krabbamein.

Jonas spilaði síðast fyrir um það bil einu og hálfu ári en hann kom inn á sem varamaður gegn Manchester United í kvöld og fékk góðar móttökur hjá stuðningsmönnum Newcastle.

,,Ég mun muna eftir þessum móttökum alla ævi. Ég er mjög ánægður með móttökurnar og stuðninginn sem stuðningsmennirnir gáfu mér í gegnum veikindin," sagði Jonas.

,,Stuðningurinn sem ég hef líka fengið frá öllum félögum í heimi hefur hjálpað mér að halda áfram að berjast."

,,Maður þarf að vera jákvæður þegar maður lendir í svona vandræðum. Ef þú trúir í hjarta þínu að þú getir sigrast á vandamálunum þá getur þú það."

Athugasemdir
banner
banner