mið 04. mars 2015 23:47
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Lætin í stúkunni þegar Gutierrez snéri aftur
Mynd: Getty Images
Jonas Gutierrez spilaði sinn fyrsta leik fyrir Newcastle United síðan hann greindist með krabbamein þegar liðið tapaði fyrir Manchester United fyrr í kvöld.

Gutierrez spilaði síðast fyrir Newcastle fyrir einu og hálfu ári síðan og fékk magnaðar móttökur þegar honum var skipt inná gegn Man Utd.

Lætin frá St. James' Park eru sögð hafa heyrst margar húsaraðir en hér fyrir neðan má sjá myndband tekið úr síma í stúkunni.

Gutierrez kom inná fyrir Ryan Taylor á 65. mínútu og gat ekki komið í veg fyrir sigurmark Ashley Young á 89. mínútu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner