Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. mars 2015 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Steve Bruce: Fullorðnir menn að haga sér eins og börn
Poyet og Bruce skiptast á orðum.
Poyet og Bruce skiptast á orðum.
Mynd: Getty Images
Hull City og Sunderland gerðu í gærkvöldi 1-1 jafntefli þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni.

Athygli vakti að knattspyrnustjórunum Steve Bruce og Gus Poyet lenti saman í leiknum, en það gerðist þegar Bruce sakaði Jack Rodwell um að dýfa sér.

,,Atvikið á sér stað þegar Jack Rodwell er að hlaupa í gegn og frá mínu sjónarhorni dýfði hann sér og dómarinn dæmdi rétt," sagði Bruce eftir leikinn.

,,Miðað við viðbrögð Gus, þá fannst honum ég hafa rangt fyrir sér. Þið verðið að spyrja hann af hverju hann kom yfir til mín. Ég veit ekki hvað ég hefði átt að gera."

,,Svona hlutir gerast í hita leiksins, fullorðnir menn að haga sér eins og börn. Svona gerist í mikilvægum leikjum. Ég er sjálfsagt ekki sá mildasti, en förum bara og fáum okkur glas af rauðvíni."


Athugasemdir
banner
banner
banner