Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. mars 2015 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Stúlkan montaði sig af sambandi sínu og Johnson á netinu
Adam Johnson er sakaður um að hafa sofið hjá stúlku undir lögaldri.
Adam Johnson er sakaður um að hafa sofið hjá stúlku undir lögaldri.
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Adam Johnson er grunaður um að hafa sofið hjá 15 ára gamalli stúlku. Nú hefur komið í ljós að handtaka hans átti sér stað í kjölfar þess að stúlkan montaði sig á netinu af því að vera í sambandi við hann og faðir hennar komst að því.

Johnson, sem leikur með Sunderland en var ekki í hóp gegn Hull City í gær, var handtekinn á mánudagsmorgun eftir að lögreglu barst ábending frá föður stúlkunnar.

Því er haldið fram að stúlkan, sem hefur ekki verið nefnd af lagalegum ástæðum, hafi montað sig af meintu sambandi sínu við leikmanninn við vini sína og á samfélagsmiðlum.

Þegar faðir hennar komst að þessu fór hann beint til lögreglunnar og Johnson var í kjölfarið handtekinn og yfirheyrður í nokkrar klukkustundir.

Stacey Flounders, kærasta Johnson, eignaðist þeirra fyrsta barn fyrir einungis sjö vikum og hefur móðir hennar haldið sakleysi leikmannsins fram.
Athugasemdir
banner
banner