Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 04. apríl 2013 21:11
Daníel Freyr Jónsson
Tímabilið búið hjá Gareth Bale?
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Tottenham, var borinn meiddur af velli undir lokin þegar Tottenham gerði 2-2 jafntefli gegn Basel í kvöld.

Bale snéri sig afar illa á ökkla og var strax ljóst að hann fann fyrir miklum sársauka.

Walesverjinn hefur verið besti leikmaður Tottenham á tímabilinu og er það mikið áfall fyrir liðið ef hann nær ekki lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni.

Bale hefur skorað 17 mörk í 27 deildarleikjum fyrir Tottenham og hafa margir talið að hann sé einn af bestu leikmönnum heims eftir frammistöðu hans í vetur.

Það er þó alls óljóst hve alvarleg meiðslin eru, en við fyrstu sýn óttast margir stuðningsmenn Tottenham það versta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner