Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 04. maí 2015 21:56
Arnar Daði Arnarsson
Frostaskjólinu
Atli Guðna: Við vorum heppnir í dag
Pepsi Guðna skoraði tvö í kvöld.
Pepsi Guðna skoraði tvö í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Atli Guðnason er kominn á blað í Pepsi-deildinni og gott betur en það. Hann skoraði tvö mörk FH í 3-1 útisigri á KR í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld.

KR-ingar komust yfir í upphafi seinni hálfleiks en Kristján Flóki Finnbogason jafnaði metin fyrir FH um miðbik hálfleiksins. Tvö mörk frá Atla tryggðu FH-ingum síðan öll stigin sem í boði voru.

Lestu um leikinn: KR 1 -  3 FH

„Við komum til að sækja þrjú stig, svo ég er mjög ánægður með sigurinn.

„Þetta leit mjög illa út í 1-0. Við vorum ekki að gera neitt, síðan skorum við mark úr horni og komum inn í leikinn. Eftir það tókum við aðeins yfir leikinn þangað til að við komumst í 2-1, þá fá þeir einhver sjö færi og Robbi (Róbert Örn) reddaði okkur. Við vorum heppnir í dag," sagði Atli.

„Það þarf að nýta færin. Það er samt hægt að segja það að Robbi hafi bjargað okkur."

Heimir Guðjónsson þjálfari FH stillti upp í 4-4-2 í kvöld en FH-ingar hafa leikið 4-3-3 frá aldamótum.

„Þetta er svosem ekkert nýtt kerfi. Þetta er 4-4-2, 4-3-3, það skiptir svosem engu máli hvernig við spilum. Þeir spila tveir frammi. Við vorum líka svona þegar Matti Vill. og Björn Daníel voru hérna í gamla daga, þetta er engin breyting."

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner